Fara í efni

Fögnum fjölbreytileikanum - Hinsegin dagar 2026

Fögnum fjölbreytileikanum - Hinsegin dagar 2026

Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst og standa yfir til sunnudagsins 9. ágúst. Markmið hátíðarinnar er að fagna fjölbreytileika mannlífs og vekja athygli á mikilvægi jafnréttis og mannréttinda hinsegin fólks.

Í tilefni daganna blaktir hinn glæsilegi regnbogafáni við ráðhús Suðurnesjabæjar, í Sandgerði og Garði. Þá má einnig berja augum litríka regnbogagötu við Vörðuna í Sandgerði og regnbogaskreytt strætóskýli við Garðbraut í Garði.

Suðurnesjabær á sérstaka og skemmtilega tengingu við Hinsegin daga í ár, en við erum stolt að segja frá því að einn af okkar frábæru íbúum Guðjón Þorgils Kristjánsson, flytur opinbera lag Hinsegin daga árið 2026. Við óskum Guðjóni Þorgils innilega til hamingju með það og hlökkum til að fylgjast með honum áfram.

 

Suðurnesjabær óskar öllum gleðilegra Hinsegin daga – fögnum fjölbreytileikanum saman!